Ferill 450. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Prentað upp.

Þingskjal 1058  —  450. mál.
Leiðréttur texti.

2. umræða.



Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (staðgreiðsla, álagning o.fl.).

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar (ÓBK, BN, BÁ, ÓGunn, ÞorstV).


     1.      Í stað orðanna „ef frá er talin búseta eða heimilisfesti á síðustu þremur mánuðum þess tímabils“ í 2. gr. komi: en þó þannig að fyrstu þrír mánuðir dvalar hérlendis teljast ekki með.
     2.      2. efnismálsl. 4. gr. orðist svo: Vextir sem skuldari hefur val um að greiða eða greiða ekki eru gjaldfæranlegir við greiðslu að uppfylltum skilyrðum 1. mgr. 1. tölul. 31. gr.
     3.      Í stað a- og b-liðar 10. gr. komi nýr stafliður, svohljóðandi: Í stað 1. málsl. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Nú telur skattaðili skatt sinn eða skattstofn, þ.m.t. rekstrartöp og ívilnun skv. 65. gr., ekki rétt ákveðinn og getur hann þá sent til ríkisskattstjóra rökstudda kæru, skriflega eða rafræna, í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður, studda nauðsynlegum gögnum. Kærufrestur er þrír mánuðir í tilviki einstaklinga og einn mánuður í tilviki lögaðila frá dagsetningu auglýsingar ríkisskattstjóra um að álagningu skv. 1. mgr. 98. gr. sé lokið.
     4.      Í stað orðanna „frá 1. janúar 2020 til 1. júlí 2020“ í 1. efnismgr. 13. gr., 1. efnismgr. 18. gr. og 1. efnismgr. 24. gr. komi: á árinu 2020.
     5.      14. gr. orðist svo:
                  Við 6. tölul. 5. gr. laganna bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Til staðgreiðsluskyldra launa samkvæmt ákvæði þessu telst þó ekki söluhagnaður af íslenskum hlutabréfum og stofnbréfum skv. 7. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um tekjuskatt. Til staðgreiðsluskyldra launa samkvæmt ákvæði þessu teljast ekki heldur vaxtatekjur af skuldabréfum sem skráð eru hjá verðbréfamiðstöð í aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París (OECD), aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 3. gr. sömu laga.
     6.      15. gr. orðist svo:
                  Í stað orðanna „skv. 4. tölul. 3. gr.“ í 2. málsl. 4. mgr. 9. gr. laganna kemur: skv. 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um tekjuskatt, 7. tölul. þeirrar málsgreinar að því er varðar söluhagnað af íslenskum hlutabréfum og stofnbréfum eða 8. tölul. þeirrar málsgreinar að því er varðar vaxtatekjur af skuldabréfum sem skráð eru hjá verðbréfamiðstöð í aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar í París (OECD), aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins eða aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum.
     7.      Á eftir 18. gr. komi nýr kafli, Breyting á lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, nr. 94/1996, með síðari breytingum, með tveimur greinum, svohljóðandi:
                  a.      (19. gr.)
                     Við 2. mgr. 3. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Séu hlutabréf sem arður er greiddur af í vörslu innlends fjármálafyrirtækis, vegna rafrænnar skráningar hlutabréfanna á skipulegan markað, hvílir skylda til að draga staðgreiðslu af arði og skila í ríkissjóð á viðkomandi fjármálafyrirtæki.
                  b.      (20. gr.)
                     Í stað orðanna „aðila sem samskattaðir eru skv. 55. gr.“ í 3. mgr. 4. gr. laganna kemur: félaga skv. 1. tölul. 1. mgr. 2. gr.
     8.      D-liður 23. gr., er verði 25. gr., falli brott.
     9.      Á eftir 29. gr., er verði 31. gr., komi ný grein, svohljóðandi:
                  Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
                  Þrátt fyrir ákvæði 3. tölul. 1. mgr. 3. gr. skal á árinu 2020 lækka skráða losun húsbíla um 40%, en þó að hámarki niður í 150 g/km, áður en til álagningar vörugjalds kemur, hafi losun einvörðungu verið skráð samkvæmt samræmdu prófunaraðferðinni. Þetta ákvæði á aðeins við ef:
                  a.      ökutæki er skráð sem bifreið í ökutækjaskrá, sbr. 9. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019,
                  b.      ökutæki fellur í flokk húsbíla eða húsbifreiða samkvæmt ákvæðum umferðarlaga, nr. 77/2019, og reglugerða sem settar eru með stoð í þeim og
                  c.      ökutæki teldist grind í skilningi h-liðar 2. tölul. 4. gr. ef það væri án yfirbyggingar til bústaðarnota með borðum og sætum, rúmstæði, eldunaraðstöðu, o.fl.
     10.      Á eftir 30. gr., er verði 33. gr., komi nýr kafli, Breyting á lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, nr. 129/2009, með síðari breytingum, með einni grein, svohljóðandi:
                  Á eftir 15. gr. laganna kemur ný grein, 15. gr. a, sem orðast svo ásamt fyrirsögn:

Endurgreiðsla vegna útflutnings.

                  Þegar sannanlega er flutt úr landi flúoruð gróðurhúsalofttegund skv. 13. gr., sem skattur var sannanlega greiddur af við innflutning, getur skattskyldur aðili sótt um endurgreiðslu á þeim skatti hafi ekki liðið meira en 12 mánuðir frá tollafgreiðslu hennar, frá og með 1. janúar 2020.
                  Aðili sem óskar endurgreiðslu skv. 1. mgr. skal, innan sex mánaða frá því að vara er flutt úr landi, sækja um endurgreiðslu í sérstakri skýrslu til tollyfirvalda, á því formi sem þau ákveða, þar sem m.a. eru tilgreind tollskrárnúmer flúoraðrar gróðurhúsalofttegundar, sá kílóafjöldi sem fluttur var inn undir því númeri og fjárhæð þess skatts sem sannanlega var greiddur við innflutning viðkomandi vöru. Leggja skal fram þær upplýsingar og gögn sem nauðsynleg eru til afgreiðslu umsóknar, svo sem staðfestingu tollyfirvalda á inn- og útflutningi og staðfestingu á greiðslu skattsins.
                  Fjárhæð sem sótt er um endurgreiðslu á hverju sinni skal vera að lágmarki 10.000 kr. Fallist tollyfirvöld á umsóknina án frekari skýringa skal endurgreiðsla fara fram eigi síðar en 30 dögum eftir að umsókn er lögð fram, enda hafi fullnægjandi upplýsingar og gögn fylgt henni.
     11.      Síðari málsliður 1. mgr. 31. gr., er verði 35. gr., falli brott.